Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 14. nóvember 2021 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Benzema og Griezmann með markahæstu mönnum Frakklands
Mynd: EPA
Frakkland fór auðvelt með Kasakstan í gær en leikurinn endaði með 8-0 sigri.

Kylian Mbappe skoraði fjögur mörk en þetta var í fyrsta sinn sem hann skorar þrennu, hvað þá fjögur, fyrir landsliðið.

Karim Benzema skoraði tvö, Adrien Rabiot og Antoine Griezmann skoruðu sitt markið hvor.

Benzema og Griezmann hafa verið duglegir að skora fyrir landsliðið en þeir eru nú meðal fimm markahæstu leikmönnum liðsins frá upphafi. Griezmann fór uppfyrir Michel Platini með 42 mörk í 3. sætið og Benzema fór í 5. sæti með 35 mörk.

Fimm efstu má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner