Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. nóvember 2021 14:40
Aksentije Milisic
England: María lék þegar Man Utd missteig sig gegn Everton
Toone og María.
Toone og María.
Mynd: Getty Images
Everton 1-1 Manchester United
0-1 Ella Ann Toone ('10)
1-1 Simone Magill ('76)

Everton og Manchester United áttust við í kvennaboltanum á Englandi í dag en leikið var á Haig Avenue vellinum í Southport.

Man Utd er í fimmta sæti deildarinnar á meðan Everton er í því níunda. United þurfti á sigrinum að halda til að saxa á liðin fyrir ofan sig á meðan þurfti að ýta sér fjær fallsvæðinu.

Ella Ann Toone kom gestunum frá Manchester yfir með marki á tíundi mínútu leiksins og var staðan 0-1 þegar dómari leiksins flautaði til leikhlés.

Þær bláklæddu gáfust ekki upp og var það Norður Írski framherjinn Simone Magill sem tryggði Everton eitt stig með marki á 76. mínútu leiksins.

María Þórisdóttir lék allan leikinn að venju í hjarta varnarinnar hjá Manchester United. Þetta var þriðja jafnteflið í röð hjá United.

Man Utd er nú sjö stigum á eftir toppliði Arsenal á meðan Everton er í níunda sætinu með sjö stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner