Miðjumaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson var að fá sitt annað gula spjald í leik gegn Norður-Makedóníu í undankeppni HM.
Lestu um leikinn: Norður-Makedónía 3 - 1 Ísland
„Elmas fór framhjá Ísak sem braut á honum og fær réttilega annað gula spjaldið sitt og þar með rautt," skrifaði Elvar Geir Magnússon í beinni textalýsingu þegar Ísak fékk sitt annað gula spjald.
Ísak hefur alls fengið fjögur gul spjöld í þessari undankeppninni, sem er frekar mikið.
Samkvæmt upplýsingum frá Transfermarkt og KSÍ er þetta hins vegar fyrsta rauða spjaldið sem Ísak fær á sínum ferli.
Athugasemdir