Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. nóvember 2021 14:00
Aksentije Milisic
Guðný lék þegar Milan vann og hélt hreinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðný Árnadóttir, leikmaður AC Milan á Ítalíu, var í byrjunarliðinu í dag þegar Milan mætti Pomigliano á útivelli í Serie A deildinni.

Hin 21 árs Guðný lék allan leikinn í vörninni hjá AC Milan sem vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu. Gott dagsverk hjá Guðný og stöllum hennar í Milan.

Eftir níu umferðir í Serie A deildinni í kvennaboltanum er Milan í þriðja sæti deildarinnar með 22 stig. Juventus situr í efsta sæti deildarinnar með 27 stig.

Guðný gekk í raðir Milan í desember mánuði árið 2020 en var lánuð til Napoli í kjölfarið. Hún lék 16 leiki með Val í Pepsi Max-deild kvenna sumarið 2020.
Athugasemdir
banner
banner
banner