Norður-Makedónía 3 - 1 Ísland
1-0 Ezgjan Alioski ('7 )
1-1 Jón Dagur Þorsteinsson ('54 )
2-1 Eljif Elmas ('65 )
3-1 Eljif Elmas ('87 )
Lestu um leikinn
1-0 Ezgjan Alioski ('7 )
1-1 Jón Dagur Þorsteinsson ('54 )
2-1 Eljif Elmas ('65 )
3-1 Eljif Elmas ('87 )
Lestu um leikinn
Ísland þurfti að sætta sig við tap gegn Norður-Makedóníu í lokaleik sínum í undankeppni HM í kvöld.
Íslenska liðið átti möguleika á því að eyðileggja veisluna fyrir Norður-Makedóníu. Það var mikil stemning á vellinum í ljósi að með sigri myndu heimamenn tryggja sér sæti í umspilinu fyrir HM.
Leikurinn byrjaði mjög vel fyrir Norður-Makedóníu því þeir tóku forystuna á sjöundu mínútu. Ezgjan Alioski, fyrrum leikmaður Leeds, skoraði þá með föstu skoti úr þröngu færi. Varnarleikurinn hjá Íslandi ekki upp á marga fiska þar.
Ísland spilaði ekki sérlega vel í fyrri hálfleik og var Norður-Makedónía mun sterkari aðilinn.
Okkar menn byrjuðu seinni hálfleikinn mun betur og tókst þeim að jafna á 51. mínútu. Jón Dagur Þorsteinsson skoraði þá sitt annað landsliðsmark eftir að Brynjar Ingi Bjarnason skallaði boltann fyrir fætur hans.
Norður-Makedónía svaraði markinu vel og fór Eljif Elmas, leikmaður Napoli, þar fremstur í flokki. Hann kom þeim aftur yfir og skoraði þriðja markið eftir að Ísak Bergmann Jóhannesson fékk að líta sitt annað gula spjald.
Lokatölur 3-1 fyrir Norður-Makedóníu sem endar í öðru sæti riðilsins á eftir Þýskalandi. Rúmenía endar í þriðja sæti. Þeir þurftu að treysta á að Ísland myndi ná í góð úrslit gegn Norður-Makedóníu til að ná öðru sætinu, en svo fór ekki.
Önnur úrslit í riðlinum:
Armenía 1 - 4 Þýskaland
0-1 Kai Havertz ('15 )
0-2 Ilkay Gundogan ('45 )
0-3 Ilkay Gundogan ('50 )
1-3 Henrikh Mkhitaryan ('59 )
1-4 Jonas Hofmann ('64 )
Liechtenstein 0 - 2 Rúmenía
0-1 Dennis Man ('8 )
0-2 Nicusor Bancu ('87 )
Athugasemdir