Birkir Bjarnason varð í dag leikjahæsti landsliðsmaðurinn frá upphafi í karlalandsliði Íslands. Hann er í liðinu gegn Norður-Makedóníu í lokaleiknum í undankeppni HM 2022.
Lestu um leikinn: Norður-Makedónía 3 - 1 Ísland
Norður-Makedónar gerðu vel og heiðruðu íslenska landsliðsmanninn með sérstakri treyju.
Á treyjunni er eftirnafn Birkis og talan '105' fyrir þá leiki sem Birkir hefur spilað fyrir íslenska landsliðið.
Virkilega vel gert hjá andstæðingum Íslands í dag en myndir af þessu má sjá hér að neðan.
Fyrir leik dagsins gegn Norður Makedóníu afhentu heimamenn Birki Bjarnasyni landsliðstreyju liðsins merkta honum í tilefni þess að Birkir er nú orðinn leikjahæsti leikmaður A landsliðs karla.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) November 14, 2021
Birkir Bjarnason is the highest capped men´s national team player ever!#fyririsland pic.twitter.com/in7KowZsbO
Athugasemdir