Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. nóvember 2021 12:20
Aksentije Milisic
Zlatan sagður byrja á bekknum í leiknum mikilvæga í kvöld
Mynd: Getty Images
Spánn og Svíþjóð mætast í lokaumferðinni í B-riðli í undankeppni HM en spilað verður í Sevilla.

Hinn fertugi Ibrahimovic er að fara spila sinn þriðja leik á einungis átta dögum en hann var í eldlínunni í Mílanó slagnum í síðustu viku og spilaði svo allan leikinn í óvæntu tapi gegn Georgíu á fimmtudeginum síðasta.

La Gazzetta dello Sport segir að Svíinn muni byrja leikinn á bekknum í kvöld en gífurlega mikið er undir.

Spánn er með einu stigi meira en Svíþjóð fyrir leikinn í kvöld og því ljóst að Svíarnir þurfa að vinna leikinn vilji þeir fara beint á HM í Katar og sleppa við umspil.

Spánn nýtti sér mistök Svíþjóðs gegn Georgíu og vann Grikkland á sama tíma og tók þannig efsta sætið fyrir leikinn í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner