Víkingur Reykjavík vann bronsið í Bose mótinu með því að vinna Fjölni 4-1 í leiknum um þriðja sætið í Egilshöll í gær. Öll mörk mótsins koma inn á heimasíðu SportTv.
Síðasta mark leiksins hefur vakið umtal enda vægast sprenghlægilegt.
Ísak Atli Kristjánsson ætlar að hreinsa boltann frá en þrumar í ungan samherja sinn, Orra Þórhallsson, sem var nýkominn inn sem varamaður. Sjón er sögu ríkari. Sjáðu markið í spilaranum hér að ofan.
Sjálfsmark Fjölnis í Bose mótinu siglir undir radarnum. Ég hefði viljað Gif og alls konar í kringum þetta. Top12 fyndnasta sem ég hef séð
— Sindri Björnsson (@Sindri95) December 14, 2017
Smelltu hér til að sjá öll mörkin úr leiknum
Úrslitaleikur mótsins verður í kvöld í Fífunni. Breiðablik og Stjarnan eigast við klukkan 19:00 og er sýndur beint á SportTv.
Athugasemdir