Sheffield Utd 1 - 2 West Brom
1-0 David McGoldrick ('12)
1-1 Gareth Barry ('41)
1-2 Kieran Gibbs ('76)
1-0 David McGoldrick ('12)
1-1 Gareth Barry ('41)
1-2 Kieran Gibbs ('76)
Sheffield United tók á móti West Bromwich Albion í toppbaráttu Championship deildarinnar fyrr í kvöld.
David McGoldrick kom heimamönnum yfir snemma leiks en Gareth Barry jafnaði skömmu fyrir leikhlé og staðan jöfn eftir jafnan hálfleik.
Gestirnir tóku öll völd á vellinum eftir leikhlé og gerði Kieran Gibbs, fyrrverandi leikmaður Arsenal, verðskuldað sigurmark þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma.
Heimamönnum tókst ekki að jafna og er WBA því komið í þriðja sæti, fjórum stigum frá toppliði Norwich. Sheffield er í fjórða sæti, tveimur stigum eftir WBA.
Athugasemdir