Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 15. janúar 2019 19:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aron Þrándar: Með leiðinlegri leikjum sem ég hef spilað
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Aron Elís Þrándarson lék tæpar 70 mínútur þegar Ísland gerði markalaust jafntefli við Eistland í vináttulandsleik í Katar í dag.

Lestu um leikinn: Ísland 0 -  0 Eistland

„Þetta var örugglega með leiðinlegri leikjum sem ég hef spilað, en maður verður að taka eitthvað jákvætt úr þessu" sagði Aron eftir leikinn.

„Þetta er búið að vera gaman. Það er alltaf gaman í landsliðinu og fá sénsinn til að spila. Það er ekki yfir neinu að kvarta."

Það var spilað við frábærar aðstæður í kvöld.

„Þetta er svakalegt gras, þetta er besta gras sem ég hef spilað á og séð. Það er allt til staðar."

Aron hefur leikið með Álasundi, sem mistókst að komast upp úr norsku B-deildinni, síðustu ár en hann stefnir núna á að komast í sterkari deild.

„Ég á eitt ár eftir af samningi og ef þeir ætla að fá eitthvað fyrir mig þá verða þeir að losa mig. Við sjáum til hvað gerist."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner