Tottenham hefur gefið út yfirlýsingu vegna Harry Kane og meiðsla hans.
Kane skaddaði liðbönd í vinstri ökklanum á lokasekúndunum í 1-0 tapi gegn Manchester United síðasta sunnudag.
Í yfirlýsingunni kemur fram að Kane verði fjarverandi fram í byrjun mars.
Þetta er mikið áfall fyrir Tottenham, sérstaklega í ljósi þess að Son Heung-min mun missa af næstu leikjum vegna landsleikjaverkefnis.
Tottenham er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og það er mikið Kane að þakka en hann er kominn með 14 mörk og er markahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar ásamt Pierre Emerick Aubameyang og Mohamed Salah.
Following preliminary assessments, we can confirm that @HKane has damaged ligaments in his left ankle, sustained during Sunday's match.
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) January 15, 2019
He will continue to be monitored by our medical staff as he commences rehabilitation and is expected to return to training in early March. pic.twitter.com/Ot3doPa4K6
Athugasemdir