Jose Mourinho er mættur aftur! Mánuði eftir að hafa verið rekinn frá Manchester United mun hann starfa sem sérfræðingur fyrir Bein Sports í Katar.
Hann mun vinna sem sérfræðingur í kringum landsleik Katar og Sádí-Arabíu í Asíukeppninni.
Hann mun vinna sem sérfræðingur í kringum landsleik Katar og Sádí-Arabíu í Asíukeppninni.
Hann verður svo einnig sérfræðingur fyrir Arsenal og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Mourinho er fyrrum stjóri Chelsea.
Mourinho má ekki tala um Manchester United, en það kom fram í starfslokasamningi hans frá United.
Mourinho fékk 18 milljónir punda frá United er hann var rekinn.
Talið er að hann fái 120 þúsund pund frá Bein Sports fyrir að vera sérfræðingur í kringum þessa tvo leiki í Katar.
Mourinho kemur á fimmtudaginn í fyrsta sinn fram opinberlega eftir brottreksturinn. Verður sérfræðingur beIn Sports á Katar - Sádi Arabía. Örugglega sjálfboðavinna. #fotboltinet
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) January 13, 2019
Athugasemdir