Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. janúar 2019 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho um Cech: Mikill missir fyrir fótboltann
Mynd: Guðmundur Karl
Markvörðurinn Petr Cech tilkynnti í dag að hanskarnir væru á leið upp á hillu eftir tímablið.

Cech er afar farsæll markvörður og hefur unnið alla titla sem að í boði eru á Englandi. Hann er í dag hjá Arsenal, en var lengi vel hjá Chelsea.

Jose Mourinho, fyrrum stjóri hans hjá Chelsea, segist vera stoltur að hafa þjálfað Cech.

„Ég er stoltur að hafa verið knattspyrnustjórinn sem gaf Petr tækifæri að verða aðalmarkvörður hjá toppliði hjá Englandi er hann var svona ungur," sagði Mourinho að því er kemur fram hjá Sky Sports.

„Þetta er mikill missir fyrir fótboltann, en það er ekki hægt að eyða sögunni. Ég óska honum til hamingju með frábæran feril."
Athugasemdir
banner
banner
banner