Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. janúar 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Nadía komin til Fjölnis - Sex leikmenn skrifa undir
Nadía er komin til Fjölnis.
Nadía er komin til Fjölnis.
Mynd: Auður Erla Guðmundsdóttir
Sjö efnilegir leikmenn voru að skrifa undir samninga við kvennalið Fjölnis sem mun leika í Inkasso-deild kvenna í ár.

Nadía Atladóttir er gengin til liðs við félagið eftir að hafa gert góða hluti á láni frá FH í fyrra. Nadía er fædd 1999 og skoraði hún 7 mörk í 14 leikjum með Fjölni síðasta sumar.

Þá voru sex leikmenn úr yngriflokkastarfinu að skrifa undir samninga, allt stelpur sem eru fæddar eftir aldamót.

Lilja Nótt Lárusdóttir er sú elsta, fædd 2001, og lék hún einn leik fyrir Fjölni síðasta sumar.

Aníta Björg Sölvadóttir, Ásdís Birna Þórarinsdóttir, Guðrún Helga Guðfinnsdóttir og Hjördís Erla Björnsdóttir eru allar fæddar 2002 og léku samanlagt 22 leiki í Inkasso-deildinni síðasta sumar. Guðrún Helga og Hjördís Erla léku 8 leiki hvor.

Hrafnhildur Árnadóttir er yngst þeirra stúlkna en hún er aðeins á sextánda ári, fædd 2003. Hún lék einnig 8 leiki fyrir Fjölni síðasta sumar.
Athugasemdir
banner