Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 15. janúar 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Fiorentina mætir Atalanta
Mynd: Getty Images
Þrír efstudeildarslagir eru á dagskrá í 16-liða úrslitum ítalska bikarsins í dag.

Dagurinn hefst á spennandi viðureign Fiorentina og Atalanta sem keppast um að mæta Inter í 8-liða úrslitum. Atalanta sló Juve út í fyrra og komst alla leið í úrslitaleikinn en tapaði þar fyrir Lazio.

Hægt er að búast við góðum leik en í síðustu fjórum innbyrðisviðureignum þessara liða hafa samtals verið skoruð 17 mörk. Liðin mættust í undanúrslitum bikarsins í fyrra og hafði Atalanta betur, 5-4 samanlagt eftir tvo leiki.

AC Milan fær SPAL í heimsókn í öðrum leik dagsins áður en margfaldir Ítalíumeistarar Juventus taka á móti Udinese.

Sigurvegarinn úr viðureign Milan og SPAL mætir Torino í 8-ilða úrslitum á meðan sigurvegarinn úr viðureign Juve og Udinese mætir annað hvort Parma eða Roma.

Leikir dagsins:
14:00 Fiorentina - Atalanta
17:00 Milan - SPAL
19:45 Juventus - Udinese
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner