Sex leikir fara fram í Seríu A á Ítalíu í dag en Sassuolo og Lazio hefja daginn klukkan 11:30.
Sassuolo hefur verið í töluverðu basli á þessari leiktíð og situr í 16. sæti á meðan Lazio er í 5. sæti.
Klukkan 14:00 eru tveir leikir. Udinese mætir Bologna á meðan Mikael Egill Ellertsson og hans menn í Spezia heimsækja Torino.
Atalanta spilar við Salernitana klukkan 17:00 áður en Roma tekur á móti Fiorentina klukkan 19:45.
Leikir dagsins:
11:30 Sassuolo - Lazio
14:00 Udinese - Bologna
14:00 Torino - Spezia
17:00 Atalanta - Salernitana
19:45 Roma - Fiorentina
Athugasemdir