Þór 1-0 KFA
1-0 Vilhelm Ottó Biering Ottósson
Þór og KFA áttust við í A deild karla í R2 riðlinum í Boganum í dag.
Þórsarar, sem spila í Lengjudeildinni, unnu í dag sinn þriðja sigur í riðlinum en leiknum lauk með 1-0 sigri gegn KFA. Gestirnir spila í 2. deild næsta sumar.
Vilhelm Ottó skoraði eina mark leiksins með hörku skoti.
Þór hafði unnið KA 2 og KF í hinum tveimur leikjum sínum.
KFA er búið að spila tvo leiki og tapa tveimur. Liðið mætir KF í næsta leik sínum en Þórsarar mæta Magna.
Athugasemdir