Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   sun 15. janúar 2023 15:12
Aksentije Milisic
Kusu um sameiginlegt lið Arsenal og Spurs - Níu frá Arsenal
Mynd: Getty Images

Í dag fer fram stórleikur þegar Tottenham Hotspur og Arsenal mætast á Tottenham Hotspur leikvangnum í London.


Slagurinn um Norður-Lundúnir er oftast tíðindamikill og ekki hefur vantað mörkin í þessa leiki.

Arsenal er í efsta sæti deildarinnar sem stendur en Tottenham er að berjast um að komast í topp fjóra.

SkySports á Englandi hafði kosningu á síðunni sinni þar sem fólk gat valið sameiginlegt byrjunarlið Arsenal og Tottenham.

Óhætt er að segja að Arsenal hafi vinninginn þar en alls níu leikmenn Arsenal eru í liðinu en einungis tveir leikmenn Tottenham.

Ramsdale, White, Saliba, Gabriel, Zinchenko, Partey, Xhaka, Ödegaard og Saka eru leikmenn Arsenal í liðinu en Harry Kane og Son-Heung Min eru leikmenn Tottenham.

Hér fyrir neðan má sjá uppstillinguna.


Athugasemdir
banner
banner
banner