Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 15. janúar 2023 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Markvörður Arsenal á leið til Austurríkis
Arthur Okonwo
Arthur Okonwo
Mynd: Getty Images
Markvörður Arsenal, Arthur Okonkwo, er ganga í raðir Sturm Graz í Austurríkis á láni út leiktíðina. Athletic greinir frá.

Okonkwo, sem er 21 árs gamall, hefur haldið hreinu í tíu leikjum hjá Crewe Alexandra í ensku D-deildinni á láni frá Arsenal á þessu tímabili.

Hann hefur nú verið kallaður til baka og verður lánaður til Austurríkis þar sem hann mun leika fyrir Sturm Graz.

Okonkwo, sem hefur gegnt stöðu þriðja markvarðar hjá Arsenal, er sagður reiðubúinn í næsta skref ferilsins, en miklar vonir eru bundnar við þennan unga leikmann.

Englendingurinn á að baki tíu landsleiki fyrir yngri landslið Englands.
Athugasemdir
banner
banner
banner