Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 15. janúar 2023 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Shakhtar stríddi stuðningsmönnum Arsenal - „Mudryk?"
Mykhailo Mudryk
Mykhailo Mudryk
Mynd: Getty Images
Úkraínska félagið Shakhtar fór illa með stuðningsmenn Arsenal á Twitter í gær.

Arsenal var í viðræðum um kaup á Mudryk og biðu stuðningsmennirnir spenntir eftir frekari fréttum áður en Chelsea kom inn í viðræðurnar og stal honum.

„Það meira af áhugaverðum fréttum á döfinni. Við erum tilbúnir að deila frekari fréttum á síðu okkar þegar fylgjendur okkar eru 51 þúsund,“ sagði á Twitter-síðu Shakhtar áður en það kom annað tíst sem sagði einfaldlega „Mudryk?“.

Stuðningsmenn Arsenal voru spenntir fyrir fréttunum en þetta reyndist stríðni frá Shakhtar því það var tilkynnt að hann væri leikmaður ársins hjá félaginu og því engar fréttir um að hann væri á leið til Arsenal. Þetta gerðist allt áður en fréttir af viðræðum Chelsea komu á yfirborðið.




Athugasemdir
banner
banner
banner