Barcelona og Real Madrid eigast við í úrslitaleik spænska ofurbikarsins á King Fahd-leikvanginum í Riyadh í Sádi-Arabíu í kvöld.
Barcelona vann Real Betis í vítaspyrnukeppni í undanúrslitunum á meðan Real Madrid lék sama leik gegn Valencia.
Liðin mætast klukkan 19:00 í úrslitaleiknum í kvöld en þá eru tveir leikir á dagskrá í La Liga.
Atlético Madríd heimsækir Almería klukkan 15:15 en fyrst eigast við Getafe og Espanyol.
Leikir dagsins:
Spánn: La Liga
13:00 Getafe - Espanyol
15:15 Almeria - Atletico Madrid
Spánn: Ofurbikarinn:
19:00 Barcelona - Real Madrid
Athugasemdir