Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 15. janúar 2023 12:20
Aksentije Milisic
Stuðningsmenn Everton eltu leikmenn liðsins eftir leik
Yerry Mina ræddi við þá.
Yerry Mina ræddi við þá.
Mynd: Getty Images

Stuðningsmenn Everton eru allt annað en sáttir með gengi liðsins á þessari leiktíð en liðið er í fallsæti.


Everton tapaði í gær gegn Southampton á Goodison Park með tveimur mörkum gegn einu í fallslag en Southampton er í neðsta sæti deildarinnar.

Stuðningsmenn Everton kalla ekki allt ömmu sína en þeir eltu nokkra af leikmönnum liðsins eftir leikinn í gær.

Varnarmaðurinn Yerry Mina steig úr bílnum og ræddi við blóðheita stuðningsmenn. Þar reyndi hann að róa mannskapinn niður og sagði að hann sjálfur myndi gefa líf sitt fyrir félagið.

Þá stöðvuðu stuðningsmenn einnig bifreið Anthony Gordon þegar hann var á leið sinni frá leikvangnum.


Athugasemdir
banner
banner
banner