Spænska félagið Real Betis er búið að finna arftaka Alex Moreno, sem fór til Aston Villa á dögunum, en brasilíski leikmaðurinn Abner er að koma til félagsins frá Atletico Paranaense.
Moreno kostaði Aston Villa 13,3 milljónir punda en sá spilaði 122 leiki og skoraði sex mörk á tíma sínum hjá Betis.
Abner, sem er 22 ára gamall, mun taka stöðu hans hjá Betis en spænska félagið hefur náð samkomulagi við Atletico Paranaense um kaup á leikmanninum.
Betis greiðir 7 milljónir evra fyrir Abner sem hefur þegar náð samkomulagi um kaup og kjör. Atletico PR mun fá 30 prósent af næstu sölu.
Abner á einn landsleik að baki fyrir Brasilíu.
Athugasemdir