Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 15. febrúar 2019 12:30
Magnús Már Einarsson
Lacazette: Að bregðast liðinu svona er vesta tilfinningin
Mynd: Getty Images
Alexander Lacazette, framherji Arsenal, hefur beðist afsökunar á rauða spjaldinu sem hann fékk undir lok leiks í óvæntu 1-0 tapi gegn BATE í Evrópudeildinni í gær.

Lacazette fékk beint rautt spjald fyrir olnbogaskot á 85. mínútu leiksins.

„Að bregðast liðinu svona er vesta tilfinningin," sagði Lacazette á Twitter í gær.

„Ég hefði átt að vera rólegur en það er ekki alltaf auðvelt. Fyrirgefið."

„Það eru ennþá 90 mínútur eftir og ég hef trú á að liðsfélagar mínir komist í næstu umferð."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner