Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 15. febrúar 2019 20:08
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Sigurmark Fjölnis kom undir lokin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK 1 - 2 Fjölnir
1-0 Brynjar Jónasson ('6)
1-1 Guðmundur Karl Guðmundsson ('39)
1-2 Ingibergur Kort Sigurðsson ('86)

Fjölnir hafði betur gegn HK í fyrstu umferð Lengjubikarsins en liðin voru að ljúka leik í Kórnum.

Brynjar Jónasson kom heimamönnum yfir strax á sjöttu mínútu leiksins en Guðmundur Karl Guðmundsson jafnaði fyrir leikhlé.

Hvorugu liði tókst svo að bæta við marki fyrr en undir lokin þegar Ingibergur Kort Sigurðsson, sem lék með Víkingi Ólafsvík í fyrra, gerði sigurmark Fjölnis á 86. mínútu.

Bæði lið eiga aftur leik að viku liðinni, HK gegn Aftureldingu og Fjölnir gegn Íslandsmeisturum Vals.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner