Juan Quintero hefur verið að gera góða hluti hjá River Plate þar sem hann er á láni frá Porto og skoraði hann svakalegt aukaspyrnumark í 2-0 sigri á toppliði Racing um síðustu helgi.
Þetta hefur verið ansi góð vika hjá Quintero því hann gerði annað mark í gærkvöldi, eina mark River Plate í jafntefli gegn Rosario Central.
Markið frá síðustu nótt var engu síðra heldur en aukaspyrnumarkið. Quintero tók hornspyrnu og endaði boltinn aftur hjá honum á kantinum, en í stað þess að gefa fyrir lét hann vaða á markið.
Markið er hægt að sjá hér fyrir neðan.
When you've scored your second wonder goal in the space of a week 🙌
— FIFA.com (@FIFAcom) February 15, 2019
Take a bow, @juanferquinte10 👏👏👏#FridayFeeling pic.twitter.com/QiQpg7dBya
Athugasemdir