Njósnarar Arsenal hafa verið duglegir að mæta á leiki Bayer Leverkusen og fylgjast með Kai Havertz, nítján ára miðjumanni.
Bayern München hefur einnig áhuga á þýska landsliðsmanninum.
Havertz spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Bayer Leverkusen 2016 og hefur síðan leikið 91 leik.
Bayern München hefur einnig áhuga á þýska landsliðsmanninum.
Havertz spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Bayer Leverkusen 2016 og hefur síðan leikið 91 leik.
Hann hefur skinið skært á tímabilinu, skorað ellefu mörk frá miðjunni og orðið lykilmaður. Hann hefur sýnt mikinn þroska og leikskilning með því að venjast því að vera í meira varnarhlutverki.
Sagt er að Arsenal horfi til Havertz í stað Mesut Özil.
Bæjarar þurfa að fara að yngja upp í hópnum hjá sér. Arjen Robben fer í sumar og Franck Ribery gæti einnig gert það.
Athugasemdir