Eibar 2 - 2 Getafe
0-1 Jaime Mata ('37 )
0-2 Dimitri Foulquier ('52 )
1-2 Charles ('67 , víti)
2-2 Charles ('80 )
0-1 Jaime Mata ('37 )
0-2 Dimitri Foulquier ('52 )
1-2 Charles ('67 , víti)
2-2 Charles ('80 )
Fyrsta leik helgarinnar á Spáni lauk með fjögurra marka jafntefli er Eibar fékk Getafe í heimsókn.
Jaime Mata kom gestunum yfir í fyrri hálfleik og tvöfaldaði Dimitri Foulquier forystuna skömmu eftir leikhlé.
Heimamenn voru ekki sáttir, enda langt frá því að vera lakari aðilinn á vellinum. Þeir skiptu um gír í kjölfarið og minnkaði Charles muninn úr vítaspyrnu.
Charles hefur verið gríðarlega mikilvægur fyrir Eibar á tímabilinu og gerði hann jöfnunarmark heimamanna á 80. mínútu. Það var hans tíunda mark síðustu níu leikjum fyrir félagið.
Meira var ekki skorað og eru áfram fimm stig sem skilja liðin að í Evrópubaráttunni. Getafe vermir fimmta sæti deildarinnar á meðan Eibar er í því tíunda.
Athugasemdir