Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 15. febrúar 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Staveley hefur ennþá áhuga á að kaupa Newcastle
Amanda Staveley (til vinstri).
Amanda Staveley (til vinstri).
Mynd: Getty Images
Amanda Staveley segir að fyrirtæki hennar PCP Capital Partners hafi ennþá áhuga á að kaupa félag í ensku úrvalsdeildinni.

Staveley átti í viðræðum um að kaupa Newcastle af Mike Ashley árið 2017 og þrátt fyrir að vera tilbúin að borga 300 milljónir punda fyrir félagið þá náðust ekki samningar. Staveley hefur ennþá áhuga á Newcastle.

„Við erum miklir aðdáendur Newcastle. Við erum miklir aðdáendur liðsins," sagði Staveley í viðtali í vikunni.

„Það er ekkert vandamál varðandi herra Ashley. Það er búið."

„Þetta er ennþá spennandi félag fyrir okkur og stuðningsmennirnir eru stórkostlegir. Við erum hins vegar að horfa á fleiri félög."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner