Augsburg 2 - 3 Bayern München
1-0 Leon Goretzka, sjálfsmark ('1)
1-1 Kingsley Coman ('17)
2-1 Ji Dong-Won ('43)
2-2 Kingsley Coman ('45)
2-3 David Alaba ('53)
1-0 Leon Goretzka, sjálfsmark ('1)
1-1 Kingsley Coman ('17)
2-1 Ji Dong-Won ('43)
2-2 Kingsley Coman ('45)
2-3 David Alaba ('53)
Alfreð Finnbogason var ekki í leikmannahópi Augsburg gegn Bayern München í kvöld vegna meiðsla á kálfa.
Augsburg byrjaði leikinn þó gríðarlega vel og var komið yfir eftir aðeins þrettán sekúndur, þegar Leon Goretzka fékk knöttinn í sig og setti óvart í eigið net.
Kingsley Coman var þó ekki lengi að jafna fyrir Bæjara en Ji Dong-Won kom Augsburg aftur yfir rétt fyrir leikhlé.
Heimamenn virtust ætla að halda forystunni í hálfleik en Coman var aftur á ferðinni í uppbótartíma fyrri hálfleiks og náði að jafna stöðuna.
David Alaba skoraði svo glæsilegt mark í upphafi síðari hálfleiks en hvorugu liði tókst að bæta við þó gestirnir frá München hafi verið talsvert beittari.
Bayern verðskuldaði sigurinn og er aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Borussia Dortmund, sem á leik til góða gegn Nürnberg á mánudaginn.
Athugasemdir