Ernesto Valverde, þjálfari Barcelona, hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum.
Hinn 55 ára gamli Valverde var með samning út tímabilið en hann er nú samningsbundinn til sumarsins 2020.
Í nýja samningnum er einnig klásúla um mögulega framlengingu í eitt ár.
Hinn 55 ára gamli Valverde var með samning út tímabilið en hann er nú samningsbundinn til sumarsins 2020.
Í nýja samningnum er einnig klásúla um mögulega framlengingu í eitt ár.
Valverde tók við Barcelona af Luis Enrique sumarið 2017 en liðið vann bæði deild og bikar undir hans stjórn á síðasta tímabili.
Barcelona er á toppnum á Spáni í augnablikinu en liðið hefur unnið 65 leiki af 96 undir stjórn Valverde, gert 22 jafntefli og einungis tapað níu.
Athugasemdir