lau 15. febrúar 2020 19:51
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Liverpool gegn Norwich: Alisson fær 8
Alisson var öflugur gegn Norwich
Alisson var öflugur gegn Norwich
Mynd: Getty Images
Sadio Mane reyndist hetja Liverpool er liðið vann Norwich 1-0 á Carrow Road í ensku úrvalsdeildinni í dag en sigurmarkið kom á 77. mínútu.

Liverpool Echo gaf einkunnir eftir leikinn en þrír leikmenn fá 8 fyrir frammistöðuna í kvöld.

Alisson, markvörður Liverpool, bjargaði Liverpool í fyrri hálfleik er tveir leikmenn Norwich voru komnir í gegn. Jordan Henderson fær þá 8 ásamt Sadio Mane.

Hægt er að sjá einkunnir leikmanna hér fyrir neðan.

Liverpool: Alisson (8), Joe Gomez (7), Trent Alexander-Arnold (6), Virgil van Dijk (7), Andy Robertson (6), Jordan Henderson (8), Gini Wijnaldum (6), Naby Keita (6), Mohamed Salah (7), Roberto Firmino (7), Alex Oxlade-Chamberlain (6).
Varamenn: Sadio Mane (8), Fabinho (7)
Athugasemdir
banner
banner
banner