Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 15. febrúar 2020 19:46
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikar kvenna: Valur ekki í vandræðum með Þór/KA
Elín Metta Jensen skoraði fyrir Val
Elín Metta Jensen skoraði fyrir Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA 0 - 4 Valur
0-1 Elísa Viðarsdóttir ('35 )
0-2 Elín Metta Jensen ('38 )
0-3 Ásdís Karen Halldórsdóttir ('72 )
0-4 Diljá Ýr Zomers ('83 )

Valur fer vel af stað í Lengjubikarnum en liðið vann Þór/KA 4-0 í Boganum á Akureyri í dag.

Valur leiddi með tveimur mörkum í hálfleik en Elísa Viðarsdóttir skoraði á 35. mínútu áður en Elín Metta Jensen tvöfaldaði forystuna þremur mínútum síðar.

Ásdís Karen Halldórsdóttir gerði þriðja mark Vals á 72. mínútu áður en Diljá Ýr Zomers gulltryggði sigurinn með fjórða markinu á 83. mínútu.

Lokatölur 4-0 fyrir Val en það er risaleikur 24. febrúar er Valur og Breiðablik mætast. Breiðablik vann Selfoss 8-1 í A-deild Lengjubikarsins fyrr í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner