Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 15. febrúar 2021 17:04
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið West Ham og Sheff Utd: Ogbonna og Antonio ekki með
Michail Antonio hefur skorað fimm mörk í fimmtán úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu.
Michail Antonio hefur skorað fimm mörk í fimmtán úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Flautað verður til leiks í fyrri leik dagsins klukkan 18:00 þegar West Ham, sem hefur komið mjög á óvart með góðum árangri á tímabilinu, mætir botnliði Sheffield United. Leikurinn er sýndur beint á Síminn Sport.

West Ham getur með sigri komist upp í fjórða sæti deildarinnar og sent Liverpool í það fimmta. Sheffield United hefur gengið afskaplega illa og er í neðsta sæti.

Angelo Ogbonna, varnarmaður West Ham, meiddist á ökkla í bikartapinu gegn Manchester United og er ekki með í leik kvöldsins. Sóknarmaðurinn Michail Antonio var ekki með gegn United og er heldur ekki með í kvöld.

Issa Diop er klár í slaginn og byrjar, þá er Jesse Lingard einnig í byrjunarliðinu.

Hjá Sheffield er John Fleck veikur og ekki með. Enda Stevens og Ben Osborn snúa aftur í liðið.

Byrjunarlið West Ham: Fabianski, Coufal, Diop, Dawson, Cresswell, Johnson, Rice, Souček, Lanzini, Bowen, Lingard.

Byrjunarlið Sheffield United: Ramsdale, Basham, Egan, Ampadu, Bogle, Norwood, Lundstram, Osborn, Stevens, McGoldrick, Sharp.



mánudagur 15. febrúar
18:00 West Ham - Sheffield Utd (Síminn Sport)
20:00 Chelsea - Newcastle (Síminn Sport)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner