Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 15. febrúar 2023 07:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gakpo ánægður með nýja hlutverkið hjá Liverpool
Mynd: EPA

Cody Gakpo leikmaður Liverpool skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í vikunni þegar liðið lagði Everton í grannaslag.


Gakpo hefur ekki byrjað ferilinn hjá enska stórliðinu með neinni flugeldasýningu en það er vonandi fyrir hann og Liverpool að markið muni gefa honum byr undir báða vængi.

Hann hefur verið að spila öðruvísi hlutverk hjá Liverpool en hann er vanur.

„Ég hef spilað nokkra leiki sem fremsti maður, meira sem fölsk nía til að vera meira með í uppbyggingunni. Þetta er öðruvísi hlutverk en ég er vanur en það er gott fyrir mig að bæta mig og halda áfram að vinna hart að mér," sagði Gakpo í viðtali hjá Sky Sports.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner