Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 15. mars 2019 07:30
Arnar Helgi Magnússon
Carragher trúir því að Liverpool geti unnið Meistaradeildina
Mynd: Getty Images
Liverpool verður í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar í dag.

Enska liðið sló út Þýskalandsmeistarana á miðvikudag með sannfærandi frammistöðu á Allianz Arena.

Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og núverandi knattspyrnusérfræðingur, segir að Liverpool gæti vel farið alla leið í keppninni.

„Frammistaða Liverpool í leiknum var stórkostleg og maður hafði það eiginlega ekki á tilfinningunni að Bayern myndi skora í leiknum. Varnarleikurinn var agaður og það er ekki hægt að hrósa Virgil Van Dijk nægilega mikið," sagði Carragher.

„Ef að Liverpool getur endurtekið þessa frammistöðu í næstu leikjum þá hafa þeir alla burði í að vinna þennan titil."

Liverpool fór alla leið í úrslitaleikinn í fyrra en tapaði þar fyrir Real Madrid.
Athugasemdir
banner
banner