Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 15. mars 2019 08:17
Arnar Helgi Magnússon
Coutinho tjáir sig um framtíðina
Mynd: Getty Images
Coutinho gerði eitt marka Barcelona þegar liðið vann stórsigur á Lyon í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

Coutinho hefur fengið mikla gangrýni frá stuðningsmönnum liðsins á leiktíðinni en hann hefur ekki náð sér á strik í treyju Barcelona.

„Undanfarnar vikur og mánuði hef ég ekki verið að spila en ég vonast til þess að það breytist," sagði Coutinho eftir leikinn gegn Lyon.

Brassinn hefur verið orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildinni og þá hefur Manchester United verið nefnt í þeirri umræðu.

„Ég kom til Barcelona til þess að gefa mig allan í verkefið. Ég lifi í núinu og það veit enginn hvað framtíðin ber í skauti sér."
Athugasemdir
banner
banner
banner