Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 15. mars 2019 14:12
Elvar Geir Magnússon
Iwobi skammaður fyrir dónaskap
Iwobi með dónaskap.
Iwobi með dónaskap.
Mynd: Skjáskot
Alex Iwobi fær gagnrýni á samfélagsmiðlum eftir hegðun sína í sigrinum gegn Rennes í gær.

Í lokin á 3-0 sigrinum gegn Rennes í Evrópudeildinni átti hann í orðaskiptum við mótherja, Hamari Traore.

Eftir þau hélt Iwobi um nefið og gaf til kynna að Traore væri andfúll. Sead Kolasinac brást snöggt við og dró liðsfélaga sinn frá Traore svo hann myndi ekki fá gult spjald.

Stuðningsmenn Arsenal voru ekki ánægðir með hegðun Iwobi og margir töluðu um að hann hafi sýnt óvirðingu. Leikmaðurinn fær skammir á samfélagsmiðlum.

Arsenal mun mæta Napoli í 8-liða úrslitum en dregið var í hádeginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner