Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 15. mars 2020 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Geta spilað PES með Ronaldinho í fangabúning
Mynd: Getty Images
Fótboltaleikurinn PES er vinsæll í Brasilíu og þar í landi notast margir spilarar við sérstaka uppfærslu af leiknum, eða svokallaðan plástur, sem kallast Bomba Patch.

Plásturinn er uppfærður reglulega og í nýjustu uppfærslunni má finna nýja tegund af Ronaldinho.

Ronaldinho er í röndóttum fangabúning enda er hann í fangelsi í Paragvæ um þessar mundir.

Hann hefur tekið upp fótboltaskóna og vann fangelsismót um helgina, þar sem hann raðaði inn mörkum og stoðsendingum fyrir sitt lið.


Athugasemdir
banner