Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 15. mars 2020 20:00
Brynjar Ingi Erluson
Immobile hraunar yfir þekktan lækni: Þú ert fáviti
Ciro Immobile í leik með Lazio
Ciro Immobile í leik með Lazio
Mynd: Getty Images
Ítalski framherjinn Ciro Immobile er allt annað en sáttur með ummæli enska læknisins Christian Jessen og fordæmir ummælin á Instagram í dag.

Jessen er þekktur læknir sem kemur oft fram í sjónvarpi en hann hélt því þar fram að íbúar á Ítalíu væru að nota kórónuveiruna sem afsökun til að fá meiri slökun.

Yfir 1800 manns hafa misst lífið á Ítalíu vegna veirunnar sem herjar allan heiminn.

„Það er svolítið fordómafullt að segja þetta og ég biðst forláts fyrirfram en er þetta ekki afsökun? Ítalir nýta sér það við hvert tækifæri að loka öllu og hætta að vinna til að ná góðri slökun," sagði Jessen.

Immobile, sem hefur raðað inn mörkum fyrir Lazio síðustu ár, er afar ósáttur með ummælin.

„Segðu skyldmönnum þeirra sem hafa dáið eða þeim sem eru að berjast fyrir lífi sínu á spítölum þetta, hálfvitinn þinn," sagði Immobile á Instagram.
Athugasemdir
banner
banner
banner