Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 15. mars 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Inter og Sassuolo mætast í beinni útsendingu í PES í dag
Mynd: Getty Images
Leikjum úr helstu deildum Evrópu hefur verið frestað fram í apríl vegna kórónaveirunnar.

Í dag er því aðeins hægt að fylgjast með leikjum úr nokkrum deildum í Austur-Evrópu auk tyrknesku og rússnesku deildunum. Í kvöld verða svo leikir á dagskrá frá Suður-Ameríku og Mexíkó.

Viðureign Inter og Sassuolo átti að fara fram í Serie A en var frestað. Félögin deyja þó ekki ráðalaus og eru búin að skipuleggja viðureign á milli eSports leikmanna sinna.

Inter mætir því Sassuolo í beinni útsendingu í fótboltaleiknum PES (Pro Evolution Soccer) í dag. Hægt verður að fylgjast með leiknum á Youtube rásinni sem er hér fyrir neðan.

Inter and Sassuolo will play today's game on Pes 2020 with their e-sports teams from r/soccer


Athugasemdir
banner
banner
banner