Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 15. mars 2020 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Segja Meunier vera búinn að samþykkja samning hjá Dortmund
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Franskir fjölmiðlar keppast við að greina frá því að Thomas Meunier muni fara frítt til Borussia Dortmund í sumar.

Jerome Rothen, knattspyrnusérfræðingur sem lék fyrir PSG og Mónakó á sínum tíma, greindi fyrstur frá þessu.

Meunier er einn af nokkrum leikmönnum PSG sem verða samningslausir í sumar. Mörg félög hafa áhuga á belgíska bakverðinum en hann er búinn að velja Dortmund ef marka má orð Rothen.

Þýskir fjölmiðlar hafa verið að greina frá viðræðum milli Dortmund og Meunier undanfarna daga og nú virðist allt vera klárt fyrir skiptin.

Meunier er 28 ára gamall og á 40 leiki að baki fyrir A-landslið Belgíu, auk þess að hafa spilað yfir 120 leiki á rétt tæpum fjórum árum hjá PSG.

Meunier hefur verið eftirsóttur af liðum á borð við Arsenal, Manchester United og FC Bayern síðustu mánuði.
Athugasemdir
banner
banner