Akhisarspor 0 - 0 Erzurum BB
Theódór Elmar Bjarnason spilaði allan leikinn er Akhisarspor gerði markalaust jafntefli við Erzurum BB í toppbaráttu tyrknesku B-deildarinnar í dag.
Elmar er með fast sæti í byrjunarliði Akhisarspor sem er komið með 45 stig eftir 28 umferðir, aðeins tveimur stigum eftir Erzurum sem situr í öðru sæti. Tvö efstu sæti deildarinnar fara beint upp í efstu deild og næstu fjögur mætast í umspilskeppni.
Leikurinn í dag var jafn og spennandi þar sem bæði lið fengu góð færi en inn vildi boltinn ekki. Elmar er að spila á miðjunni hjá Akhisarspor, oft sem framliggjandi miðjumaður.
Athugasemdir