mán 15. mars 2021 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Andri Fannar að koma til baka - Lék með U19 liði Bologna
Mynd: Getty Images
Roma U19 1 - 0 Bologna U19
1-0 Tommaso Milanese ('79, víti)

Andri Fannar Baldursson hefur verið að glíma við meiðsli en er að koma til baka. Hann spilaði fyrstu klukkustundina í leik með U19 liði Bologna gegn Roma í dag.

Ari Sigurpálsson, sem verður 18 ára í vikunni, er einnig á mála hjá Bologna og fékk að spreyta sig undir lok leiksins.

Hinn 19 ára gamli Andri Fannar hefur verið viðriðinn aðallið Bologna undanfarið ár og á tólf leiki að baki í Serie A.

Topplið Roma hafði betur í leiknum en U19 lið Bologna er í fallbaráttu.
Athugasemdir
banner
banner
banner