Liverpool er opið fyrir því að hlusta á tilboð í Divock Origi en hann hefur verið lengst hjá Liverpool af núverandi leikmönnum liðsins fyrir utan fyrirliðan Jordan Henderson.
Jurgen Klopp er klár í að selja til þess að fá pening fyrir nýja leikmenn eftir slakt gengi Liverpool á þessari leiktíð. Hinn 25 ára Origi hefur fengið lítið að spila fyrir Liverpool á þessari leiktíð.
Hans síðasti byrjunarliðsleikur kom þann 31. janúar gegn Everton en hann lagði upp mark fyrir Sadio Mane gegn RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu í síðasta leik.
Origi kom til Liverpool árið 2014 en hann var á láni hjá Lille áður en hann kom til liðsins. Origi á þrjú ár eftir að núverandi samningi sínum hjá Liverpool og er félagið núna að skoða hvað það geti fengið mikinn pening fyrir Belgann.
Athugasemdir