Manchester United gæti endurheimt nokkra leikmenn fyrir síðari leikinn gegn AC Milan í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á fimmtudag.
Paul Pogba, Edinson Cavani, Anthony Martial, Donny van de Beek og David De Gea voru allir fjarri góðu gamni í 1-0 sigrinum á West Ham í gær.
„Meiðslalega séð vonumst við til að fá fjóra eða fimm leikmenn til baka fyrir næsta leik," sagði Solskjær.
„Það er mjög líklegt að Edinson og Anthony verði heilir, Donny vonandi líka."
„Paul gæti jafnvel náð að koma með og David er kominn aftur eftir sóttkví. Þetta eru fleiri menn. Í dag (í gær) vorum við með tvo markmenn á bekknum og við þurfum að fá þessa menn til baka."
Athugasemdir