Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 15. mars 2021 07:30
Aksentije Milisic
Neville: Bruno og Pogba einu skapandi leikmennirnir hjá United
Mynd: Getty Images
Gary Neville, fyrrverandi leikmaður Manchester United, segir að Bruno Fernandes og Paul Pogba séu einu leikmenn liðsins sem eru skapandi og búa til marktækifæri.

United vann 1-0 sigur á West Ham í gær en liðinu gekk illa að brjóta vörn gestanna á bak aftur. Það var þá aðalega Bruno Fernandes sem skapaði færi United í leiknum en hann átti hornspyrnuna sem markið kom úr.

Gary segir að United verði að bæta sig í því að brjóta niður varnir andstæðinganna sem leggjast aftarlega á völlinn gegn þeim.

„Þetta er spurning um meiri gæði á síðasta þriðjungnum. Það eru til fleiri vel skipulögð og þétt lið nú en áður. Sérstaklega lið sem eru í neðri hluta deildarinnar," sagði Gary.

„Þú þarft frábæra leikmenn. Sjáðu Man City. Mahrez, De Bruyne, Gundogan, Foden. Þeir eru með fimm eða sex skapandi leikmenn."

„Ef tveir leikmenn hjá City meiðast, þá stíga bara aðrir upp. Ef Bruno er ekki á deginum hjá United þá er það helst Luke Shaw sem er líklegur til að búa til eitthvað í sókninni. United verður að spila miklu hraðar og bæta leik sinn."

Paul Pogba hefur verið meiddur undanfarið en Ole Gunnar Solskjær sagði í gær að mjög stutt sé í að hann verði leikfær.
Athugasemdir
banner
banner
banner