Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 15. mars 2021 10:30
Magnús Már Einarsson
Pele óskar Ronaldo til hamingju með að slá met sitt
Cristiano Ronaldo.
Cristiano Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Pele hefur óskað Cristiano Ronaldo til hamingju með að slá met sitt yfir flest mörk í mótsleikjum.

Ronaldo skoraði þrennu á fyrstu 32 mínútunum gegn Cagliari í gær og hefur nú skorað 770 mörk í mótsleikjum, þremur meira en Pele gerði á ferli sínum.

„Ég ber mikla virðingu fyrir þér. Ég elska að horfa á þig spila og það er ekkert leyndarmál. Til hamingju með að slá met mitt yfir mörk í opinberum leikjum," sagði Pele á Instagram.

Tékkneska knattspyrnusambandið vill meina að Josef Biscan eigi metið yfir flest mörk skoruð í mótsleikjum eða 821 talsins.

Tölfræðingar segja að Biscan hafi skorað 805 mörk á ferlinum en að 27 þeirra hafi verið í varaliðsleikjum og því sé hann með 759 mörk í mótsleikjum.

Athugasemdir
banner
banner