Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 15. mars 2021 08:30
Aksentije Milisic
Saka meiddur í læri
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að Bukayo Saka, leikmaður liðsins, eigi við meiðsli í læri að stríða.

Saka fór af velli í hálfleik í gær í sigurleiknum gegn Tottenham en Nicolas Pepe kom inn á í hans stað.

Saka hefur verið einn af betri leikmönnum Arsenal á þessari leiktíð og því ljóst að þetta eru ekki góðar fréttir fyrir Arteta og hans menn.

„Við munum skoða þetta. Honum leið illa í lærinu og við þurftum að taka hann útaf. Meira veit ég ekki," sagði Arteta eftir leikinn í gær.

Saka hefur spilað 34 leiki fyrir Arsenal á þessari leiktíð og skorað sex mörk. Þá hefur hann lagt upp sjö mörk en hann hefur einungis misst af níu leikjum á þessari leiktíð í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner