banner
   mán 15. mars 2021 07:00
Aksentije Milisic
Tottenham hefur áhuga á Vestergaard
Mynd: Getty Images
Tottenham hefur áhuga á varnarmanni Southampton, Jannik Vestergaard. Talið er að félagið ætli að gera tilboð í leikmanninn næsta sumar.

Þessi 28 ára gamli Dani kom til Southampton frá Borussia Monchengladbach árið 2018 og hefur spilað 68 leiki fyrir félagið. Hann hefur staðið sig mjög vel og er lykilmaður í vörninni.

Jose Mourinho hefur áhuga á leikmanninum en hann er með Toby Alderweireld, Davinson Sanchez, Joe Rodon og Eric Dier í miðvarðarstöðunni sem stendur.

Hann hefur verið að rótera töluvert í vörninni og virðist hann ekki treysta hverjum sem er þar. Því ætlar hann að reyna klófesta Vestergaard en samningur Vestergaard hjá Southampton rennur út á næsta ári.

Tottenham vonast eftir því að fá leikmanninn tilturlega ódýrt þegar þessu tímabili lýkur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner